Hér kemur fyrir sjónir lesenda sjötti árgangur og þar með sjötta bókin með norrænum sakamálum. Í þessari bók eru fimm íslenskar frásagnir sem ég held að séu áhugaverðar og þess virði að gefa sér tíma til að lesa þær. Þessar frásagnir eru ólíkar bæði í efni og framsetningu. Hér er frásögn af stóru fíkniefnamáli, sem ekki er aðeins sérstakt vegna þess mikla magns af fíkniefnum sem er fjallað um að hafi verið flutt inn til Íslands, heldur einnig af því að þetta mál var árangur af sérstöku samstarfi íslenskra og þýskra lögregluyfirvalda sem bar svo góðan árangur. Þá er frásögn af manndrápsmáli og rannsókn þess lýst af tæknideildarmönnum í Reykjavík sem segja frá því hvernig sannleikurinn birtist þeim í blóðinu á vettvangi. Í þessari bók eru einnig frásagnir af tveimur öðrum manndrápsmálum sem hvort um sig er sérstakt, bæði vegna þess hvernig verknaðirnir eru framdir og einnig vegna þeirra aðila sem málin fjalla um. Annað þeirra lýsir því hvernig trúarbrögð og siðir, sem okkur eru fjarlæg, geta haft ótrúlega mikil áhrif á líf nútímafólks á Íslandi. Síðast en alls ekki síst er frásögn af máli um umhverfisbrot, en það varð fyrsta málið á sínu sviði, sem endaði með áfellisdómi. Þetta er skemmtileg og hlýleg frásögn sem mun falla öllum unnendum íslenskra náttúru vel í geð.Það er ekki síður áhugavert að lesa frásagnirnar frá hinum Norðurlöndunum. Þær fjalla um margvísleg efni og engin þeirra er annarri lík. Margar þeirra eru svo sérstakar að lesandinn hlýtur að hugsa með sér hvernig þetta geti eiginlega gerst. Það er líka mjög athyglisvert og fróðlegt að lesa um erfiðleika lögreglumannanna og þrautseigju þeirra við að leysa þessi mál þótt það hafi í sumum tilfellum tekið fleiri ár.Ég er viss um að lesendur hafa ánægju af að kynnast þessum málum og þeir verða einnig á margan hátt fróðari eftir lestur þeirra.Njótið vel!
Die bei uns gelisteten Preise basieren auf Angaben der gelisteten Händler zum Zeitpunkt unserer Datenabfrage. Diese erfolgt einmal täglich. Von diesem Zeitpunkt bis jetzt können sich die Preise bei den einzelnen Händlern jedoch geändert haben. Bitte prüfen sie auf der Zielseite die endgültigen Preise.
Die Sortierung auf unserer Seite erfolgt nach dem besten Preis oder nach bester Relevanz für Suchbegriffe (je nach Auswahl).
Für manche Artikel bekommen wir beim Kauf über die verlinkte Seite eine Provision gezahlt. Ob es eine Provision gibt und wie hoch diese ausfällt, hat keinen Einfluß auf die Suchergebnisse oder deren Sortierung.
Unser Preisvergleich listet nicht alle Onlineshops. Möglicherweise gibt es auf anderen bei uns nicht gelisteten Shops günstigere Preise oder eine andere Auswahl an Angeboten.
Versandkosten sind in den angezeigten Preisen und der Sortierung nicht inkludiert.
* - Angaben ohne Gewähr. Preise und Versandkosten können sich zwischenzeitlich geändert haben. Bitte prüfen sie vor dem Kauf auf der jeweiligen Seite, ob die Preise sowie Versandkosten noch aktuell sind.